28.03.2007 10:03:11 / valli

Páskafrí nálgast

         Jæja þá fer páskafríið víst að nálgast, ég veit hvað ég mun gera í páskafríinu mínu og það er að fara norður og vera með henni Unu minni. Ég ætla mér að borða mikið af nammi þessa páska er t.d. búinn að halda mér frá páskaegginu sem við erum að fara send til Elsu bara svo ég borði það ekki. Spurningin er bara hvernig páskaegg á maður að fá sér Góu, Nóa eða freyju vill ekki Mónu viðbjóð. En hvað er málið með páskaegg og nammið inn í því? það er alltaf viðbjóður, það er eins og fyrirtækin(nói, góa og allt það) setji bara nammið sem selst ílla út í búð og ætlar til þess að krakkar borði það svo með páskaeggjunum.

         Aðeins 2 deildarleikir eftir hjá okkur í HK, það er leikur í kvöld hjá okkur kl. 20:00 í Ásgarði á móti Stjörnunni og svo keppum við á laugardaginn á móti ÍS. Eftir leikinn á móti ÍS þá er ég búinn að spila 4 leiki og fara á eitt hraðmót á aðeins 11 dögum og það er sweet. Við erum búnir að keppa á móti Þrótti sem fór 3-1 fyrir okkur fékk lítið að spila í þeim leik en spilaði mjög vel þegar ég kom inn á, kepptum við ÍS á sunnudaginn, fékk að spila mikið þar en spilaði eins og kúkur eins allir hinir í liðinu rétt unnum 3-2 töpuðum okkur í fíflalátum. Núna er bara að bíða og sjá hvað maður fær að spila mikið á móti Stjörnunni í kvöld og svo á móti ÍS aftur á laugardaginn.

kv. Valgeir

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 16:47:10 / valli

fucking fukk

Jæja þá er helgin búin... það var nóg að gera hjá mér um þessa helgi og verður ekki minna um að gera hjá mér næstu helgi:D Una var í Rvk. þessa helgi en hitti hana samt ekki mikið:(, það var landsliðs forval (23 manna forval) næst verður 15 manna forval veit ekki hvað margir gefa kost á sér eða hvort ég komist í þetta blesaða landslið en ég vona það samt:) og svo var keppt 2 leiki 1 í bikarkeppninni og svo einn leik í 2 deildinni og var það seinasti leikurinn í annari deildinni.

Laugardagurinn byrjaði með því að við í HK kepptum á móti Stjörnunni í bikarnum og er það skandal hvað við keppum snemma á móti þeim á meðan ÍS og Þróttur Rvk. sytja hjá og keppa á móti hvoru öðru í 3 umferð. (Sæsi?:!:) Leikurinn var jafn og spennandi, í fyrsta hrynan fór 25-27 fyrir Stjörnunni en vá hvað ég var ósáttur með Leif að hafa ekki séð Róbert detta bókstaflega í netið í stöðunni 24-23 fyrir okkur. Stjarnan vann svo 2 hrynu nokkuð örugglega ég fékk að spila svolítið í henni og náði 3 sóknarstigum og var að standa mig fínt í henni fúlt að hafa ekki náð fleiri stigum. Í 3 hrynu þá voru Eiki og Óli V í aðalhlutverkum og áttu gjörsamlega hrynuna sem endaði með sigri hjá okkur:D, 4 hrynan var mjög jöfn og skemmtileg og endaði hún með mjög svekkjandi tapi 27-29 og stjörnumenn komnir áfram í Bikarnum. Eftir leikinn var farið á landsliðsæfingu og var það mjög skemmtileg æfing, En einu gömlu sem voru á þeirri æfingu voru Sæsi og Alli en annars voru það bara við ungu strákarnir sem vorum. Eftir æfinguna þá var farið til mín (Óli A, Óli J og Reynir) Við strákarnir pöntuðum pizzu enda vorum við hungraðir eftir leikinn og svo æfingu þótt að við borðum eitthvað eftir leikinn fyrir æfinguna. Eftir að við vorum búnir að borða þá koma Una og vinkona hennar Edda til okkar og var spilað Trivial Persuit sem endaði mjög snemma ekki mikil stemmning fyrir það spil núna, eftir að við vorum búin að spila og tala um hvað við áttum að gera var horft á Oceons 12 og kvöldið var endað á því.

 Útaf því að við áttum að spila á móti Fylki í 2 deildinni ásunnudaginn var okkur strákunum (Mér Óla A og Reyni) bannað að fara á landsliðsæfingu sem var fúlt af því eldri gaurarnir voru allir á æfingunni:( en við kepptum við Fylki og var það frekar slakur leikur þótt að við unnum hann 3-2. Þetta var fáranlegur leikur en við unnum hann þó sem er gott. Ég gerði barasta ekkert eftir leikinn þannig þetta skemmtilega blog er á enda.

Kv. Valgeir 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 16:38:34 / valli

Nóg að gera

Jæja það er nóg að gera hjá mér þessa helgi:D ekki nóg með það að ég sé að fara keppa 1 leik þá er ég líka að fá Unu aftur suður(samt ekki bara til að hitta mig) heldur var ég einnig valin í forval í A-landsliðsins í blaki og verða æfingar um helgina:D

Á sunnudaginn er seinasti leikurinn okkar í 2 deildinni á móti Fylki og skiptir sá leikur ekki miklu máli af því við getum ekki farið í úrslit því miður en við bætum okkur samt árangurinn okkar um helling frá því í fyrra lentum þá í seinasta sætinu en núna hins vegar náðum við 2-3 sæti ef við vinnum Fylki og Hrunamenn tapa 3-0 á móti Þrótti 2 en það skiptir engu máli af því við erum búnir að tapa fleiri hrynum en þeir:( þannig við náum ekki að komast í úrslitakeppnina. En svo er einnig nokkarar æfingar hjá A-landsliðinu. Ekki nóg með  að það sé landsliðsæfingar heldur líka er bikarleikur í brosbikarnum kl. 13:00 á laugardaginn:D

Hef ekkert meira að segja í bili kv. Valgeir


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 17:44:00 / valli

Besta vika í heimi

Jæja þá var besta vika í lífinu mínu að enda til þessa og það er helvíti fúlt. Una fór í dag aftur norður til Akureyrar um 12 leitið... og þarf ég að bíða í viku til að hitta hana aftur... en það er í lagi ekkert að gera hjá mér nema er að fara keppa á móti Stjörnunni á laugardaginn og svo líka næsta laugardag en það verður reyndar viðurstyggilega mikilvægur leikur af því það verður í bikarkeppninni...

Djöful var þetta sweet vika, gerði ógeðslega lítið og lá eiginlega bara með Unu upp í rúmi að kúra eða horfa á eitthvað ef ég var ekki á æfingu eða í vinnunni minni... Núna þarf ég bara að drífa mig að fá mér bílpróf til þess að ég fái leyfi til að vera á vinnuvélunum á Kópavogsvelli sem er bara skemmtilegar vélar, verð krúsandi um á sláturvélum eða eitthvað í sumar:... En já skemmtilegt að enda á þessu blogi að Una gleymdi alla vega svona 2-5 flíkum hjá mér... haha þessi stúlka gleymir alltaf einhverju. Núna er ég hættur þarf að fara fá mér að borða og svo er ég að fara á fund í Toyota með mfl. í blaki og horfa á blakleiki saman:D

Kv. Valgeir 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 00:16:41 / valli

2-3 sætið er okkar

jæja við strákarnir í HK komumst í 2-3 sætið í gær:D eftir að hafa unnið Hamar frá Hverargerði. Hef lítið að segja um þennan leik nema að hann var mjög slakur hjá okkur á köflum lentum í því að vita ekkert hvar við vorum inn á vellinum og vorum að gera heilan helling af misstökum.

Vildi bara koma þessu inn til að vera svolítið virkur á þessari blessaðri síðu ;) en já Una mín er að fara koma til mín á laugardaginn og verður hjá mér í 8 daga eða svo og mig hlakkar mikið til að hitta hana. Ég get varla beðið eftir að fá að sjá hana aftur.

Kv. Valgeir 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 17:56:56 / valli

Helgin

Jæja núna er hlegin senn á enda og margt búið að ske þótt hún sé stutt. Það var farið í bíó, spilað og kvatt ættingja.

Á föstudaginn þá fór ég í jarðarför hjá Höllu frænku og var sú athöfn mjög flott, falleg lög spiluð og svo fín minningarorð sem presturinn sagði. Það var fjölmennt í jarðarförinni en ég þekkti nánast enga hræðu þarna nema ættingjana mína sem voru viðstaddir. Svo seinna á föstudeginum fór ég á æfingu hjá 3 flokki og vá djöfulsins snilld var sú æfinga vorum aðeins 4 á æfingunni ég, Reynir, Óli A og svo Orri sem var eini úr 3 flokki, þetta var fámenn en góðmenn æfing;). Síðar um kvöldið upp úr engu ákváðum við strákarnir að fara í bíó og fengum við þær Jónu og Sæunni til liðs við okkur. Myndin sem við fórum á var Pans Labyrinth og er það ein besta mynd sem ég hef séð í langan tíma þessi mynd og einnig Brick en þetta eru geðveikar myndir. Það voru skiptar skoðanir um þessa mynd en ég og Reynir vorum einu sem fundust hún vera geðveikt góð og skildum hana en hins vegar sofnaði víst Sæunn.

Laugardagurinn var ekkert síðri en föstudagurinn, 2 blakæfingar er ekki svo slæmt 3 flokks æfing sem var kl. 11:30 og var fín æfing, eftir æfinguna fórum ég, Óli A og Reynir að horfa og styðja kvennaliðið í HK sem áttu leik við Þrótt Rvk. Leikurinn endaði reyndar 3-0 fyrir Þrótti Rvk. Leikurinn var ágætur og HK stúlkur voru ekki óheppnar að ná ekki hrinu af Þrótturum, leikurinn var sýndur í sjónvarpinu og þar sáumst við strákarnir allir fallega málaðir nema Óli A(Er að spá að byrja með gullkornadálk Óla A). Eftir leikinn þá var farið á Mfl. æfingu hún var fjölmenn en einnig góðmenn. Var ekki að standa mig svo vel á æfingunni var ekki með fulla einbeitingu... Eftir æfingu fór Óli A heim til sín að borða en ég, Reynir og Óli J fórum til mín og borðuðum þar. Seinna um kvöldið fórum við strákarnir að ná í Óla A og svo Partý og Co spilið hans Óla J. Þegar við vorum búnir að ná í Óla og spilið var ferðinni haldið til mín, það var spilað langt fram á nótt en í lok stóð Team Valli og Óli J uppi sem sigurvegarar þótt að Óli A hafði reynt að vinna spilið með leikhæfileikum sínum, Óli sýndi það og sannaði í gærkvöldi samt að hann sé bjartasta stjarna Íslendinga í leiklistinni og ég hlakka til að sjá hann í sínu fyrsta hlutverki sem geðklofinn maður (inside joke).

Sunnudagurinn er búinn að vera fínn Blakæfing eldsnemma í morgunsárið. Þegar æfingin var búinn þá þurftum við að hjálpa til við að setja saman æfingar tæki í Röskvu sem HK var að kaupa. Eftir að ég og Ólarnir voru búnir að hjálpa eldri köllunum að setja saman tækin þá fórum við inn í íþróttahúsið og tókum þátt á 3 flokks æfingu og var það fín æfing. Eftir allar æfingarnar þá fór ég heim að gera alls ekki neitt þar til að reynir sagði mér að koma og styðja sig að dæma leik í Hagaskóla. En núna er eiginlega dagurinn búinn og ég hef ekkert að gera og nenni alls engu og svo er þetta blog orðið anskoti langt þannig þetta ætti að verða nógu gott í bili.

Kv. Valgeir 

 


   

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 12:22:12 / valli

Ég rís alltaf aftur eins og Fönix

Jæja ég ætla núna að byrja að blogga aftur þetta gengur ekki hvernig ég er ekkert búinn að blogga síðan um verslunarmannahelgina.

Lítið er að frétta af mér síðan um verslunarmannahelgina nema ég varð 18 ára síðar í ágúst svo í september fór til Svíþjóðar með unglingarlandsliðinu í blaki og lendum við í 5 sæti af 6:S en það var mjög gaman en ekki samt var þetta ekki nálægt því að vera jafn skemmtileg ferð og þegar við fórum til Finnlands:D svo síðar í sama mánuði fór ég í helgar heimsókn til Elsu systur sem býr í Köben og var það mjög skemmtileg ferð;). Svo í lok nóvember þá byrjaði ég með stelpu sem heitir Una og ég kynntist henni í gegnum blakið og er hún uppspilari í KA. Um jólin fórum við fjölskyldan aftur út til Danmerkur og vorum þar fram að 3 janúar.

Ég er núna bara að vinna og svo einnig í fjarnámi hjá Iðnskólanum í Rvk. og mér er bara að ganga vel þar:). Ég er enn þá með Unu og á von á henni til mín 20 feb. Ég er örugglega að fara byrja að vinna á mánudaginn á Kópavogsvellinum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 12:45:00 / valli

Verslunarmannahelgi og annað hluti 1

 Ég er ekki ánægður með það hvað það er langt síðan að ég bloggaði seinast svo ég ákvað að drífa mig af því núna, hef frá mörgu að segja eins.

Verslunarmannahelgin:Ég, Óli J, Óli A, Reynir og Davíð tókum þá ákvörðun að fara til Lauga á Unglingalandsmótið, einnig fór Hilmar og fékk Óli A far með honum þangað, Alex kom líka en var reyndar stutt á meðal okkar en það var fínt að hafa hann þarna hjá okkur. Á leiðinni norður voru svolítil þrengsli í bílnum hjá Reyni enda ekki skrítið, við vorum fjórir í bílnum þ.a.s. ég, Davíð, Óli J og Reynir auðvitað að keyra en ástæðan af hverju það voru svona mikil þrengsli var útaf við vorum með mikin farangur.
Þegar við komum til Lauga þá vorum við í svona 30 min að reyna að finna góðan staðþað var ekki fyrr en hilmar kom með þá snilldar hugmynd að við mundum bara tjalda á svæði sem var nánast engin var á.(man samt ekki hvaða félag átti að vera þar:S) Á fyrsta deginum þá töpuðum við báðum leikjunum förum bara ekki út í það. Á öðrum degi breytist þetta hjá okkur þá geðrum við jafntefli (sumir fengu rauða spjaldið:$8| hver ætli það hafi verið?) svo unnum við fyrsta leikinn okkar vá hvað það var geðveikt, við enduðum svo daginn með því að grilla vá hvað kjötið var gott það var svo nice hvernig þetta var hjá okkur mig langar eiginlega að fara aftur í útilegu á næstunni. á þriðja deginum endur tókum við leikin í fótboltanum og gerðu jafntefli í fyrsta leiknum en unnum svo síðari leikinn. Við lentum í þriðja sæti af fjórum liðum en það var samt fínt.

Ætla að koma með seinni hlutann seinna þangað til. þá verður það að bíða.

Kv. Valgeir


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 13:42:03 / valli

Vinna

Jæja ég er í vinnunni og er bara búinn að vera vinna eins og berserkur undan farna daga og hef eiginlega ekkert gert nema að vinna og vinna. En það er eitt mjög gott við það að vinna og það er að maður fær pening og vá hvað mig hlakkar til á morgun, þá er fyrsta útborgun ég er að deyja úr spenningi.

En um helgina þá var ég í úrtaki fyrir u-18 landsliðið og djöfull var gaman í því Todor sem er þjálfarinn okkar er rugl góður þjálfari og það er geðveikt að vera með honum á æfingu. Maður var bara búinn eftir helgina kom svo í vinnuna á mánudeginnum og var eins og níræð kelling af því ég var búinn í löppunum og alles.

En ég ætla að fara vinna aftur matarhléið mitt er búið. kv. Valgeir


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 15:27:39 / valli

Þá eru bara foreldranir að koma heim

Jæja þá eru 2 dagar þar til að foreldranir mínir koma heim... maður er byrjaður að hlakka til... það er orðið svolítið þreytt að vera einn heim þótt það sé mjög skemmtilegt... bara það er drullu erfitt að reyna húsinu hreinu... maður er bara í mesta basli með það... En kannski er það svona erfitt af því ég er einn að gera það og er með allt húsið... en annars er ég bara ánægður að hafa fengið að vera einn heima þótt að ég hafði viljað fara með austur...

En þessi helgi er búinn að vera snilld... Var að vinna á laugardaginn til kl. 16:00 en átti samt eiginlega ekki að vera að vinna en það þýðir að maður fær bara meiri pening... En eftir vinnu um 16:00 þá komu Reynir og Óli J og náðu í mig og við fórum svo á bílasýninguna sem er búin að vera í Laugardalshöllinni, eftir að við vorum búnir að skoða okkur um þá fórum við bara að versla í bónus fyrir grill sem var svo hjá mér um 8. Eftir matinn um 11 leitið þá skoruðum við strákarnir(ég, reynir, óli j, alex og angelo) á óla a , hlyn, sindra, davíð og einar í fótbolta... djöfull var gaman í því... úrslitin enduðu 12-15 fyrir óla a og félögum en næst þá vinnum við pott þétt...

þetta verður ekki lengra
Kv. Valgeir

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 01:00:23 / valli

Skemmtun

Jæja ég er einn heima fram að þriðjudeginu í næstuviku:D og það er bara snilld.. hélt grillveislu á laugardaginn með strákunum í hk-blak eða svona flestum... við kusum svalasta gaurinn og það var Angelo án djóks hann leit allveg út eins og mafíósi...

Ég er núna með Óla, Óla J og Hlyni í singstar og vá það er stemmning Reynir var hérna rétt áðan en hann var að fara ... eins og er þá er ég að rústa strákunum...Og enginn annar en Óli J er að rústa öðru sætinu...

1.Valli
2.Óli J
3.Óli A
4.Hlynur

kv. Valgeir

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 20:48:47 / valli

Sumarið

Jæja þá er ég bara byrjaður að vinna á fullu... Ég er að vinna upp á Höfða í Intersport og er í skódeildinni þar og líka eitthvað inn á lager en eins og er þá er ég bara í skódeildinni og það er snilld. Vinnufélagarnir mínir eru snillingar þekki núna svona flesta svona eitthvað nema fólkið í lager:S:S hef ekkert verið í kringum þá en það er í lagi.

Jámm sko ég er líka mjög fúll yfir því að ég fer ekki austur á Neskaupstað þegar öll fjölskyldan fer af því ég er að fara að vinna en það er í lagi verð einn heima stiltur og prúður:P

En þetta verður ekki lengra í bili kv. Valgeir

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 14:21:23 / valli

SumarFrí:D

SUMARFRÍ... Ég er kominn í sumarfrí djöfulsins snilld er það, núna er vika þar til að maður fer að vinna þannig ég ætla að nýta þann tíma sem ég hef til að vera með vinum mínum vel... Mér gekk vel í prófunum eða þ.a.s. öllum nema stærfræðinni ég skeit upp á bak í henni þegar ég átti svona 4-7 dæmi eftir ekki gott...

Elsa er kominn frá Denmark og það er bara snilld, það er svo gaman að sjá hana aftur hef ekki séð hana síðan um jólin og það er ágættlega langt síðan finnst mér... Hún er kominn á klakann til að fara á landsliðs æfingar núna og svo keppa í blaki fyrir landsliðið 17-20 maí:D.

Jámm verð að segja eitthvað um mig... það er allt fínt að frétta af mér:d er bara á fullu að taka til alla vega þarf að fara brjóta saman fötin mín þannig vi ses...

kv. Valgeir

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 00:04:22 / valli

Próf...

PRÓFIN eru byrjuð hjá mér YESSS... Ég tók íslenskupróf í dag og var það fyrsta prófið mitt af 6. Ég tek próf í ísl. stæ, ens, badmintoni, íþróttafræði og svo íþróttum. Já talandi um íslensku prófið þá gekk mér rosalega vel í því prófi og tel ég að ég rúllaði prófinu upp:D.

Næst á dagskrá er að læra fyrir stærfræðina og svo einnig bóklega hlutann fyrir bílprófið og er bara kominn tími að ég fái mér eitt stykki bílpróf þetta er rugl hjá mér að vera ekki kominn með bílpróf... Það mundi allt verða svo miklu auðveldara tökum bara dæmi: þá tæki miklu styttri tíma að koma mér í skólann og svo á blak æfingar og svo væri toppurinn að vera ekki kominn um 00:00 heim eftir blak æfingu sem er búin 10:30. En hvað um það...

hef ekkert svo sem meira að segja nema að þetta blog er tileinkað Kollu KA-stúlku sem ég segi vera snilling eða það sem ég hef fengið að kynnast frá henni...

Bless í bili, ég er farinn að fá mér eitthvað að borða. kveðjur Valgeir....

» 17 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 16:51:38 / valli

Yo maður

Ég sá þessa skondu blog færslu hjá elfu og ég verð að látta þetta inn hjá mér... Veldu mánuðinn sem þú fæddist: Janúar: Ég drap: Febrúar: Ég sló Mars: Ég svaf hjá Apríl: Ég horfði á Maí: Ég fróaði mér með Júní: Ég slefaði á Júlí: Ég hló að Ágúst: Ég stakk September: Ég skaut Október: Ég naut ásta með Nóvember: Ég handtók Desember: Ég kúkaði á. Veldu núna afmælisdaginn þinn: 1. Hóru 2. Kærasta/una þína 3. Konu með HIV 4. Kynsæandi Dverg 5. Jólasvein 6. Playboykanínu 7. Giftri móðir 8. Kennara 9. Mömmu þína 10. Páskahérann 11. Köttinn 12. Djöflinum 13. Asískum skiptinema 14. Jónsa í svörtum fötum 15. stein 16. DVD spilara 17. Klámstjörnu 18. Síma 19. Tölvu 20. Húsið þitt 21. Svín 22. Lampa 23. Kúk 24. Davíð Oddson 25. 50 cent 26. Kynskipting 27. Yddara 28. Skólaumsókn 29. Birgittu Haukdal 30. Tappatogara 31. Prentara Veldu þriðja stafinn í eftirnafninu þínu: a - af því ég elska súkkulaði b - af því að mér leiddist c - af því að buxurnar mínar voru of þröngar d - af því að þarf alltaf að prumpa e - af þvía ð hjartað mitt er tveim nr of lítið f - af því að ég fékk engar gjafir um jólin g - af því mér finnst egg góð h - af því að ég er á sýru i - af því ég missteig mig j - af því ég er með vörtu k - af því mér líkar cheers l - af því að ég var skökk/skakkur m - af því ég var full/ur n - af því að mamma sagði mér að gera það o - af því ég er hýr p - af því ég er einmanna q - af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast r - af því ég er gröð/graður s - af því mig langar að deyja t - af því ég hata skóla u - af því ég þarf að fróa mér v - af því að ég elska náttfatapartý w - af því að það róar mig x - af því að ég elska marmelaði y - af því að ég elska prump ö - af því ég er að safna rasshárum. Jæja hvað fékkst þú út?? Ég fékk alla vega: Ég stakk tappatogara af því ég var skakkur

» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4